Amtmannsstígur 2a

From ReykjaWiki
Jump to navigation Jump to search

(einnig nefndur Amtmannsstígur 2c). Þessi lóð tilheyrði upphaflega Félagsbakaríinu (Amtmannsstígur 2b) en eftir brunann 1905 komst hún í eigu olíufélagsins DDPA (Det Danske Petroleum Aktieselskab). Gárungarnir túlkuðu hið skammstafaða heiti á þessa leið: Danskur djöfull pínir alþýðuna.

Þarna var síðar bækistöð Hins íslenska steinolíuhlutafélags og var jafnan kallað Olíuportið. Síðar varð það eign Olíufélagsins hf. Loks keypti ríkissjóður lóðina undir byggingar handa Menntaskólanum í Reykjavík.

Amtmannsstígur 2 Amtmannsstígur 2b