Main Page

From ReykjaWiki
Jump to navigation Jump to search

ReykjaWiki[edit | edit source]

Þetta er sýnishorn af því hvernig Wiki með texta úr bókinni Reykjavík - Sögustaður við Sund eftir Pál Líndal gæti litið út. Tilgangurinn er bæði að kynna hugmyndina og þreifa á verkefninu. Ég hef punktað niður athugasemdir um þær leiðir sem ég hef valið við yfirfærslu og uppsetninu textans úr bókunum.

Bókin byrjar í Aðalstræti og ReykjaWiki byrjar líka þar. Auk Aðalstrætis eru hér færslur um Amtmannsstíg, Akurey og Alþingishúsið, ásamt nokkrum innskotsgreinum. Alls eru þetta um 20 skannaðar blaðsíður.

Neðst á hverri síðu eru síðan örvar til að fletta áfram eins og í bókinni, en það er líka hægt að leita eftir götuheitum og kaflaheitum í textanum. Einfaldast er þó að byrja í Aðalstræti.